Vesturberg

Viðhald utanhúss

Árið 2025 tókum við hjá Tré og málun ehf. að okkur alhliða utanhússviðhald á fjölbýlishúsinu að Vesturbergi 78. Verkefnið var viðamikið þar sem skipt var um 30 glugga og 20 svalahurðir á húsinu, auk þess sem farið var í yfirgripsmiklar steypuviðgerðir, málun og viðhald á tréverki.

Við sáum um verkið í heild sinni og lögðum til alla vinnupalla, tæki og efni til að tryggja að framkvæmdin væri unnin hratt, örugglega og eftir ströngustu gæðastöðlum.

Þetta var gert

Þvottur og múrviðgerðir: Húsið var háþrýstiþvegið með 350 bar þrýstingi. Að því loknu voru fletir hreinsaðir, filtað var yfir sprungur og gert við lausa kanta með viðgerðarblöndu.
Málun útveggja: Allir ómálaðir veggir voru grunnaðir með Steinakrýl. Næst var þykkmálning sett á lóðrétta fleti og sprungur áður en veggirnir voru málaðir tvær umferðir með Steintex.
Svalir og handrið: Svalagólf fengu tvær umferðir af epoxýmálningu. Járnhandrið voru hreinsuð, ryð var grunnað með epoxy og þau máluð með þolmálningu.
Tréverk og gluggaskipti: Skipt var um 30 glugga og 20 svalahurðir á húsinu. Annað eldra tréverk var skafið, slípað og grunnað með fúgavörninni Kjörvara 14. Að lokum voru tréhandrið, eldri gluggar og hurðir máluð tvær umferðir með Kjörvara 16.
Scroll to Top