Alhliða smíðavinna og viðgerðir á tréverki
Viðhald og endurnýjun á tréverki fasteigna. Fullkomin yfirferð á timbri og klæðningum frá fúaviðgerðum yfir í nýsmíði og lokafrágang.
Smíðavinna fyrir húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga
Við sjáum um alla almenna smíðavinnu, lagfæringar og viðhald á tréverki, bæði innan- og utanhúss. Hvort sem um ræðir smærri viðvik eða stærri framkvæmdir, mætum við á staðinn, leggjum mat á ástandið og sjáum um verkið frá A-Ö. Við búum yfir mikilli reynslu í að endurnýja og lagfæra skemmt eða fúnað tréverk þannig að frágangurinn verði traustur og snyrtilegur.