Grandavegur

Viðhald utanhúss

Árið 2024 tók Tré og málun ehf. að sér alhliða utanhúsviðhald á fjölbýlishúsinu að Grandavegi 5. Verkefnið náði yfir allt ferlið, frá þvotti og múrviðgerðum til málningar á veggjum, þaki, gluggum og hurðum, auk viðgerða á svalagólfum og handriðum.

Þetta var gert

Þvottur og múrviðgerðir: Hús háþrýstiþvegið með 350 bar þrýstingi. Múrviðgerðir framkvæmdar, fínar sprungur filtaðar og lausir kantar lagfærðir með viðgerðablöndu.
Málun veggja: Allir ómálaðir veggir grunnuðir með Steinakrýl. Þykkmálning sett á lárétta fleti og fínar sprungur. Veggir málaðir tvisvar með viðeigandi útimálningu.
Tréverk og gluggar: Tréverk skafið og slípað, ber viður grunnaður með fúgavörn Kjörvara 14. Hurðar og gluggar málaðir tvisvar með þekjandi olíumálningu Kjörvara 16.
Svalagólf og handrið: Svalagólf fengu epoxymálningu. Lausar ílagnar brotnar upp og múraðar með góðum vatshalla. Járnhandrið þreinsað, ryð blettað með epoxygrunn og málað.
Þak: Þak málað tvisvar með One þakmálningu.
tre og malun icon

Sérfræðingar í viðhaldi fasteigna síðan 2006

Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu

phone icon692 5734
Mail iconSendu okkur fyrirspurn
Scroll to Top