Þrastarás

Málun á tréverki og þaki

Tré og málun ehf. tók að sér utanhússmálun á Þrastarási. Verkefnið skiptist í tvo áfanga; annars vegar var timburverkið á húsinu tekið í gegn, og hins vegar var þakið hreinsað og málað. Lögð var áhersla á vandaða fúavörn og grunnvinnu á öllum flötum til þess að tryggja sem lengsta vörn.

Þetta var gert

Undirbúningur tréverks: Timbrið skafið og slípað, og allur ber viður grunnaður með Kjörvara 14 fúavörn.
Viðgerðir á tréverki: Timbur á gluggum skipt út þar sem það var mjög fúið og illa farið
Málun á tréverki: Gluggar, þakkantur og hurðir málaðir tvær umferðir með þekjandi Kjörvara 16 olíumálningu.
Stigahús: Tveir illa farnir renningar á hlið stigahússins málaðir sérstaklega.
Þakmálun: Þakið háþrýstiþvegið, ryðvarið og málað tvisvar.
tre og malun icon

Sérfræðingar í viðhaldi fasteigna síðan 2006

Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu

phone icon692 5734
Mail iconSendu okkur fyrirspurn
Scroll to Top