Viðhald utanhúss

Tré og málun ehf. tók að sér smíðavinnu þar sem endurgera þurfti fúinn útvegg frá grunni, ásamt því að byggja nýjan pall fyrir framan húsið. Lögð var áhersla á varanlegar lausnir og réttan frágang til að verja bæði hús og burðarvirki gegn raka og veðrun.

Þetta var gert

Endurgerð útveggs: Öll grind og klæðning rifin burt vegna fúa. Steypt var undir nýja grind til að lyfta henni frá jörðu, hún einangruð, varin með dúk og vatnsklædd. Að lokum voru settar flasningar til varnar gegn vatnsgangi.
Nýr viðarpallur: Skipt um alla undirbyggingu og yfirborð. Jarðvegsskrúfur notaðar til að tryggja að grindin haldist kyrr yfir jarðvegsdúk og að lokum klætt með hefðbundnu pallaefni.
Frágangur og þvottur: Stéttin við húsið háþrýstiþvegin að framkvæmdum loknum svo frágangurinn liti sem best út.
tre og malun icon

Sérfræðingar í viðhaldi fasteigna síðan 2006

Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu

phone icon692 5735
Mail iconSendu okkur fyrirspurn
Scroll to Top