Melhagi

Málun á þaki og tréverki

Tré og málun ehf. tók að sér að endurnýja þak á fasteign við Melhaga sem var orðið mjög illa farið af tæringu. Þar sem málningin var nánast öll flögnuð af var lögð sérstök áhersla á ítarlega ryðhreinsun og vandaða grunnvinnu til að stoppa skemmdirnar og tryggja fullkomna viðloðun. Samhliða þakvinnunni var allt tréverk hússins endurbætt og málað.

Þetta var gert

Þvottur: Járnið háþrýstiþvegið með miklum þrýstingi til að fletta af allri lausri málningu, flögum og óhreinindum.
Ryðvörn og grunnun: Allir tærðir fletir slípaðir niður í bert járn, ryðpunktar blettaðir með epoxýgrunni og allt óvarið yfirborð heilgrunnað.
Málun á járni: Þakið málað tvívegis með slitsterkri og sveigjanlegri þakmálningu sem þolir miklar veðrasveiflur.
Tréverk: Timbrið skafið, slípað og grunnað með fúavörn áður en það var málað tvær umferðir.
tre og malun icon

Sérfræðingar í viðhaldi fasteigna síðan 2006

Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu

phone icon692 5734
Mail iconSendu okkur fyrirspurn
Scroll to Top