Seilugrandi

Viðhald utanhúss

Seilugrandi 4 er stórt fjölbýlishús sem hafði orðið fyrir umtalsverðum skemmdum á ytra byrði. Steypan var brotin upp á mörgum stöðum, sprungur rifu sig í gegnum veggi og ryð hafði náð að setja sig í handrið og járnvirki. Tré og málun ehf. sá um heildarviðhald yfir nokkur ár, frá þvotti og múrviðgerðum til gluggaskipta og málningar.

Þetta var gert

Þvottur og múrviðgerðir: Hús háþrýstiþvegið með 350 bar þrýstingi. Múrviðgerðir framkvæmdar á 145 m², lausir kantar lagfærðir og sprungur filtaðar með viðgerðablöndu.
Grunnhúðun og málning: Allir ómálaðir veggir grunnuðir með Steinakrýl. Þykkmálning sett á lárétta fleti og fínar sprungur. Veggir málaðir tvisvar með viðeigandi útimálningu.
Handrið og gólf: Allt ryð slípað og blettað með epoxygrunn. Handrið máluð tvisvar með þolmálningu. Svalagólf máluð tvisvar með epoxy.
Tréverk og gluggar: Tréverk skafið og slípað, ber viður grunnaður með fúgavörn Kjörvara 14. Gluggar og hurðar málaðar tvisvar með þekjandi olíumálningu Kjörvara 16.
Gluggaskipti: Skipt um glugga og gler. Nýir tréglugglar frá Gluggatækni, skrúfaðir fastir í stein og þéttir með einangrunnarpulsu. Kíttaðir að innan með akrýlkítti.
tre og malun icon

Sérfræðingar í viðhaldi fasteigna síðan 2006

Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu

phone icon692 5734
Mail iconSendu okkur fyrirspurn
Scroll to Top